|
|
23.02.2007 00:21:38 / gudnyb
»
02.02.2007 02:12:39 / gudnyb
»
17.03.2006 23:29:02 / gudnyb
Mín ekki dugleg að skrifa inn á bloggið frekar en
venjulega.........það er nú ekki mikið nýtt að frétta hér á
bæ.......það er einhver óléttuveiki að ganga sem ég er ekki að
smitast af í vinnunni líður varla sú vika að maður frétti ekki
af einhverri sem er ófrísk og svo eru víst nokkrar sem útskrifuðust
með mér sem eru með eitt á leiðinni.......bara gaman að því
ætli ég láti ekki bara duga mínar skvísur, þær eru alveg yndislegar
eins og t.d. á öskudaginn þá ætlaði ég sko að vera snemma í því
að kaupa á þær búninga, fór með þær í Leikbæ þar sem við eyddum ca
klukkutíma í að finna búninga.........Sara Lind var alveg ákveðin í
því að hana langaði að vera trúður, minnsta mál að finna
trúðabúning og hún alsæl..........Íris Dögg hinsvegar vissi ekkert
hvað hún vildi vera og alveg sama hvað ég stakk uppá nei, hún vildi
það ekki, nema svo endaði með að hún var sátt við að vera
poppstjarna...........vei, búin að finna búninga en samt 2 vikur í
öskudag........onei, það var ekki svo gott.......2 dögum fyrir
öskudag grét Íris Dögg sig í svefn af því að hana langaði svo að
vera Sylvía nótt vegna þess að 2 vinkonur hennar ætluðu að vera
Sylvía nótt og mamma annarrar þeirra hafði saumað Sylvíu nótt
búning handa þeim..............og það var farið í það að redda
henni Sylvíu nótt búning sem að amma Hrönn reddaði á 4 klst og ég
þræddi nokkrar búðir áður en ég fann hárkollu handa henni í
stíl............o my god.........ár í næsta öskudag og ég er að
hugsa um að vera ekkert of snemma í þessu, þarf hvort sem er að
redda einhverju á síðustu stundu
Svo er nú afmæli skvísanna á næstu grösum........þarf að fara að
plana það.........þær eru nú boðnar í afmæli hjá bekkjarsystur
sinni á sunnudaginn í Ævintýraland, ekki vitlaus hugmynd og svo var
eitt afmælið í skautahöllinni og eitt í keiluhöllinni........mér
finnst þetta mjög sniðugt.......kannski endar maður bara í því að
halda það einhversstaðar annars staðar en hér heima, aldrei að
vita...............jæja, þar til næst.........kyss og knús

»
12.01.2006 23:49:08 / gudnyb
Já, loksins gleðilegt ár og takk fyrir árið sem er að
líða ég er nú rétt að jafna mig núna eftir áramótin
sem voru vægast sagt alveg hræðileg hjá okkur
fjölskyldunni..............hún dóttir mín litla hún Íris Dögg
slasaði sig, pilsið hennar fór í friðarkerti og kviknaði í því en
sem betur fer var brugðist fljótt og vel við því og fór það miklu
betur en búist var við í byrjun...........en samt 2. stigs bruni á
lærinu á henni sem er allt að gróa vel, var síðast með hana í
skiptingu í dag á slysó og allt lítur vel út............þ.a. við
eyddum áramótunum á slysó Við erum búin að vera í sjokki
síðan......en erum svona að jafna okkur en ég get sagt ykkur eitt
að á friðarkerti verður ekki kveikt hér.......við vorum heima hjá
tengdó þegar þetta gerðist og ég efast stórlega um að þau hafi
friðarkerti aftur við dyrnar eins og var núna............þetta fór
vel en guð minn góður hvernig þetta hefði GETAÐ
endað.............við erum þvílíkt búin að velta okkur upp úr
því............EN getum þakkað fyrir að þetta fór ekki
ver...........
Að öðru leyti er bara fínt að frétta af
okkur..........hversdagsleikinn tekinn við, búið að pakka öllu
jólaskrauti niður og nú er bara að bíða eftir vorinu...........mér
finnst þessir mánuðir janúar og febrúar svooooooooooo leiðinlegir
þ.a. maður bíður bara spenntur eftir að vorið komi jæja, þar
til næst, bææææææææææ
»
19.12.2005 22:29:25 / gudnyb
Jæja, mín bara komin með jólalúkkið á síðuna og er komin í þvílíka
jólaskapið enda á síðasta sjéns, jólin alveg að koma.........ég hef
bara ekki gefið mér neinn tíma í að blogga, alltaf nóg að gera hér
á bæ.........var að hugsa það í dag að ef ég væri ennþá í skólanum
þá væri ég að klára prófin ca í dag og væri komin í jólafrí ennn
ekki þannig núna sakna sko ekki prófanna EN sakna próflokanna 
klikkuð, maður........æi, þessi tilfinning að vera búin í prófum og
vera bara komin í jólafrí er náttúrulega BARA
geggjuð......... en nú er bara vinna um jólin, vinna á þorlák,
vinna á aðfangadag, vinna á annan í jólum og vinna á milli jóla og
nýárs og vinna á nýársdag...........hm,hm, sakna
jólafrísins........jæja, nóg um þetta í bili........ef ég blogga nú
ekki meira fyrir jól (sem ég tel ekki miklar líkur á  ) þá segi ég
bara GLEÐILEG JÓL og hafið það alveg rosalega gott um jólin því að
það ætla ég sko að gera (þ.e. þegar ég er í fríi  ) Bæ í
bili..........
»
15.09.2005 23:02:24 / gudnyb
»
08.08.2005 16:44:10 / gudnyb
Já, það er líklega kominn tími á blogg..........ofurbloggerinn ekki
að standa sig  það er bara búið að vera svo mikið vesen á þessari
blessaðri tölvu minni að ég er ekki að nenna að fara í hana, þ.e.
þá sjaldan að ég er heima.........Við erum nefnilega búin að vera
mest lítið heima við fjölskyldan, erum búin að fara mikið til
Steinunnar systir í Borgarnesi og gista þar nokkrum sinnum, svo
fórum við á ættarmót í Skagafirði, í Húsafell í bústað í viku og
vorum núna síðast um helgina í Þjórsárdal í húsbílnum hans
pabba. Búið að vera mikið á ferðinni og mér finnst ég varla
gera mikið annað en að setja ofan í töskur og taka upp úr þeim
aftur og ég tala nú ekki um endalausan þvott!!!! en nú er
sumarið bara að verða búið  alveg ótrúlegt hvað það er búið að
fljúga áfram.........tvær vikur í að snúllurnar mínar byrji í
skólanum og þrjár vikur í að ég fari að vinna........ótrúlegt!!!!
Þær eru svo spenntar að byrja aftur og aðal spenningurinn er sá að
þær eru að byrja í 2 bekk, þeim finnst þær orðnar
svo rosalega stórar.......(og mér líka  ) Þær eru líka svo sælar
með það að þær eru komnar með sérherbergi, við fluttum þær upp í
herbergin þar og keyptum ný rúm handa þeim og náttborð og þær eru
búnar að gera voða fínt hjá sér og alveg alsælar  virðast
eiginlega bara sofa betur í sitthvoru herberginu þ.a. það er bara
fínt.......Ég er náttúrlega alsæl með að vera ekki
að byrja í skólanum í haust heldur fara bara að
vinna  jæja, er hætt í bili, verð vonandi duglegri í
ofurbloggerahlutverkinu  sí jú
»
11.07.2005 10:14:01 / gudnyb
Já, það er sko búið að vera nóg að gera hjá okkur síðustu
vikur.....mánudaginn eftir útskriftina rukum við mæðgur til
Steinunnar systur til að hjálpa henni að sjá um heimili og börn því
að hún var að drepast í bakinu og gat lítið gert...við vorum hjá
henni til fimmtudags þá keyrðu mamma og Emil Frosta til okkar og þá
var lagt af stað til Akureyrar á pollamót sem Frosti tók þátt
í. Við gistum hjá Karen og Hlyn eins og alltaf þegar við
förum til Akureyrar og það var voða gaman.......að vísu duttu
strákarnir út á laugardagsmorguninn en ég held að það hafi nú verið
aðallega vegna þess að þeir eru náttúrlega ekki í neinni æfingu, en
gaman samt að taka þátt.....svo var heljarinnar grillveisla á
laugardagskvöldið svaka stuð........við komum svo heim á
sunnudagskvöldið. Á mánudag komu svo þær mæðgur, Steinunn,
Lára Karitas og Fanney Rún til okkar og voru þær hjá okkur til
fimmtudags......á laugardaginn var svo rokið aftur til Borgarnes
til að hjálpa Steinunni að undirbúa afmæli Láru Karitasar en hún
átti afmæli í gær og gistum við hjá þeim og komum heim í
gærkvöldi. Í morgun byrjuðu snúllurnar mínar á
íþróttanámskeiði hjá Fylki....þær voru svo spenntar í morgun að það
var vaknað kl hálf átta........þannig að nú er bara mæðraorlof hjá
mér næstu 2 vikurnar frá kl 9-15......eða þannig, það er sko
eiginlega nóg að gera sem ég er búin að vera að fresta að gera
síðustu 4 árin 
jæja, hætt í bili........sí jú later.......
»
27.06.2005 21:51:13 / gudnyb
»
18.05.2005 17:44:40 / gudnyb
Já, það er að koma að rannsóknardeginum, ekki á morgun heldur
hinn Þar munum við hjúkrunarnemar kynna verkefnin okkar.
Okkar Hildigunnar verkefni heitir "Áhrif líkamsræktar á andlega
heilsu og svefn kvenna".......svo ætlum við út að borða á
Hereford um kvöldið, verður örugglega mjög gaman Það
er kominn mikill spenningur í mann. Verkefnið er næstum því
klárað, veggspjaldið í prentun og maður er farinn að sjá fyrir
endann á náminu............það er nú ekki leiðinlegt.........samt
verður skrítið í haust að fara að vinna í stað þess að byrja í
skólanum.....engar vísindaferðir í boði (ekki það að ég hafi neitt
verið sérstaklega dugleg að mæta í þær, sérstaklega ódugleg núna á
4.ári.......), engin bekkjarpartý (sem ég var nú sérstaklega dugleg
að mæta í hm,hm ), engar frímínútur og sitja og kjafta við
stelpurnar enn þá verð ég bara að líta á björtu hliðarnar sem
eru.........engin verkefni ,ekkert verknám engin próf
.......já, þetta verður frekar skrítið 
»
06.05.2005 21:57:34 / gudnyb
»
30.04.2005 16:27:45 / gudnyb
»
23.04.2005 15:58:19 / gudnyb
»
18.04.2005 21:57:16 / gudnyb
»
15.04.2005 15:28:04 / gudnyb
Já, nú er ég hálfnuð í prófum  og það er nú mikið gott.......ég
hef ekki hugmynd um hvernig mér gekk  það er svo erfitt að segja
til um þessi hjúkrunarfræðipróf......maður skrifar og skrifar og
skrifar og svo kemur það bara í ljós.......en ég er hinsvegar alveg
gjörsamlega búin eftir þetta próf og það verður nú ekki mikið lært
í dag......hvíld í dag og svo byrjað á fullu á
morgun........Hjúkrunarstjórnun.......o my god......ekkert smá
leiðinlegt fag.......EN EITT próf eftir og svo BÚIN........
»
Síður: 1 2 3
|
|